Ég er best, og allir vita það!!!
06.04.2006 08:53:34 / punk_dyr

Gleðilegar fréttir!!!

Ég er að fara til Namibíu eftir 3 daga!!!!!!

Ég á afmæli eftir 59 daga!!!!!!!!

Ég get ekki beðið!!!!!!!

En á ömulegri nótum, þá er ég í frönsku tíma að gera nákvæmlega ekki neitt. Ég er búin að öllu sem ég þarf og á að gera (og er búin að vera búin að því í þó nokkuð marga daga) og þetta er ekki skemmtilegt. Það er eins gott að ég tók tölvuna með mér, að því annars hefði ég dáið úr leiðindum.

En á eftir er ekkert að gera (eins og venjulega) nema sitja heima og læra og horfa á sjónvarp og vonast til þess að Stöð 2 er komin aftur.

Það eru kosningar í skólanum á eftir um hvaða flokkur í Fél 303 (held ég, þetta heitir allavega stjórnmálafræði) á að vinna kosningarnar. Ég veit ekki hvort ég get kosið, að því að ég er í tíma fyrir hádegi, og líka í hádeginu, og þetta eru tímarnir sem kosningarnar verða, þannig að ég veit ekki hvort ég get stutt Ninnu og flokkinn hennar. Ég ætla ekki að kjósa hinn flokkinn (fyrir utan það að ég þekki Ninnu) að því að ég er stranglega á móti Finnboga akkúrat um þessar mundir. Hann skemmdi fyrir mér heilt föstudagskvöld, sem ég er ekki sátt við, og flokkurinn sem er að reyna að nota hann til að vinna má alveg eiga sig.

Annars leiðist mér (ef þig föttuð það ekki) að því að þessi tími er bara kjaftæði þakka þér fyrir

Jæja, mér leiðist svo mikið að heilinn í mér er orðin að graut þannig að ég get ekki hugsað um neitt annað til að segja, þannig að við heyrumst

Blæ
Deisý

» 2 hafa sagt sína skoðun

30.03.2006 13:02:39 / punk_dyr

!!!!!

ég er að fara til Namibíu eftir 10 daga!!!!!!

og ég á afmæli eftir 66 daga!!!!!!!

Yay!!!

ég hlakka svo til!!!!!!!!!!!

» 2 hafa sagt sína skoðun

29.03.2006 13:45:24 / punk_dyr

klukk og fleira

Ok, ég var víst klukkuð fyrir einhverju tímabili, og hef nú ákveðið að blogga um það, og ýmislegt fleira.

4 störf sem ég hef unnið um æfina:
Barnapía
Vinnuskólinn
Pizzasendill
Sjoppu-stelpa

4 bíómyndir sem ég get horft á aftur og aftur:
Dumb and Dumber
Finding Nemo
Rocky Horror Picture Show
The Spongebob Squarepants movie

4 staðir sem ég hef búið á:
Kanada
Írland
Namibía
Svíþjóð

4 sjónvarpsþættir sem mér líkar:
Friends
Lost
Futurama
Family guy

4 síður sem ég skoða daglega fyrir utan bloggið:
heimasíðan hans pabba
b2.is
tölvupósturinn minn
hyskid.is

4 staðir sem ég hef heimsótt í fríum:
Namibía
Kanada
Svíþjóð
Suðureyri

4 matarkyns sem ég held uppá:
hakk og spagetti
skattasúpa
kínamatur eins og pabbi gerir
indverskur matur eins og pabbi gerir

4 staðir sem ég vildi heldur vera á núna:
sofandi uppí rúmi
á kaffihúsi í bænum
í bænum að gera eikkað sniðugt
í Namibíu hjá pabba, tinnu og rúnari atla

Bloggarar sem ég klukka:
Ég var víst svo lengi bíða með að skrifa þetta að það er búið að klukka alla sem ég þekki.

Ok, þá er þetta komið, og ég get farið að blogga um eikkað annað.

Það er bara 11 dagar þangað til ég fer til Namibíu að heimsækja pabba og tinnu og rúnar atla, og ég hlakka svo til að ég er alveg að deyja! Eftir 264 tíma verð ég í flugvél, eða í London að bíða eftir næstu flugi eða eikkað soleiðis. Ég hlakka svo til!!!!!

En núna er ég að láta mér leiðast í stjörnufræðitíma og að óska þess að ég væri einhversstaðar annarstaðar. Tíminn er miklu leiðinlegari en venjulega að því að Þórhildur er veik (':cry:')
Sem er ekki gott. Ég vona að hún verður í góðu lagi á morgun svo við getum notið þess að þurfa ekki að fara í líffræði saman.

En ég man voða lítið hvað ég á annað að segja, þannig að ég ætla kannski bara að þegja (tíhíhí)

Allavega
blæjó
Dagmar

» 3 hafa sagt sína skoðun

07.03.2006 20:01:03 / punk_dyr

Verð að blogga pínu meira...

Ok, ég var að finna bloggsíðu pabba míns. Hann er búinn að vera í Namibíu í meira en 2 heila mánuði, og ég var að komast að þessu í dag. (eða um daginn í rauninni, en ég skoðaði hana fyrst í dag)



allavega, þar komst ég að því hversu mikið krútt bróður minn er orðinn. Hann segir víst 14 orð (avísu ekki Dagmar. en það er hægt að laga það). Þ.a.m. segir hann ís, takk, bíll, mamma, pabbi, og eikkað fleira. Geðveikt krútt skiluru!!!



Svo voru fleiri skemmtilegar sögur og fréttir, og nokkrar myndir líka, þótt að ég væri til í að þær voru fleiri... en það verða örugglega fleiri eftir eikkern tíma.



Síðan er allavega til vinstri undir "annað skemmtilegt" minnir mig. Þannig að endilega skoðið það. Þá getiði séð hversu mikið krútt Rúnar Atli er í alvörunni. Ef þið eruð hugsanlega orðin þreytt á að ég er að tala mikið um hann eða eikkað soleiðis rugl.



Talandi um annað. Ég er alveg að verða geðveik. Tinna sagði mér að það væri kennari í St Paul's sem man eftir mér, en ég er engan vegin að muna hver þetta er.



HAHA!!!!! ég var að muna hver þetta hugsanlega er! Umsjónarkennarinn minn í 8. bekk. þá var hún kölluð miss B (nafnið var eikkað flókið þannig það nennti engin að segja það almennilega) En ég er alveg 98,5% viss um að þetta er hún. Ég held nebbla að hún giftist árið sem ég var í 9. bekk. þá var hún hætt að kenna mér þannig að þetta passar allt. Sem er ágætt. Þá verð ég ekki send til Klepp út að þessu. Bara pirrandi fréttamanna-hljóðið sem er að gera mig vitlausa. En það er allt annar handleggur.



jæja, núna get ég ekki skrifað meira í þessari stellingu

Blæjó í bili

Deisý

» 2 hafa sagt sína skoðun

05.03.2006 15:15:54 / punk_dyr

Jæja, ok

Ok, ok, loksins er ég aftur að blogga.

Það er búið að vera alveg brjálað að gera hjá mér og soleiðis.

samt veit ég ekkert hvað á að segja. Jú, ok. Ómar er fluttur inn til mín og mömmu. Hann er frændi minn. Það er rosalega gaman.

Svo er skólinn alveg jafn leiðinlegur og venjulega.

En ég hef svo sem ekkert annað að segja. allavega ekkert sem ég man eftir.

» 0 hafa sagt sína skoðun

18.01.2006 16:11:29 / punk_dyr

Niðurstöður

Jæja, þá eru niðurstöðurnar úr skoðanakönnuninni komnar....

Á næstu önn (vonandi) verð ég byrjuð á sjúkraliðabrautinni líka. Ég segi vonandi að því að það er ekki 100% að brautin byrji aftur á næstu önn, en ég vona það alveg helling. annars verð ég að gera eikkað meirháttar (er samt ekki alveg viss hvað)

Jæja, vildi bara koma þessu á framfæri.
heyrumst
Deisý

» 4 hafa sagt sína skoðun

17.01.2006 19:26:49 / punk_dyr

Komin með pínu gaman...

1. Hver ert þú?

2. Erum við vinir?

3. Hvenær hittumst við fyrst og hvernig?

4. Ertu hrifin/nn af mér?

5. Langar þig að kyssa mig?

6. Láttu mig hafa gælunafn og útskýrðu afhverju þú valdir það.

7. Lýstu mér í einu orði.

8. Hvernig leist þér á mig þegar þú sást mig fyrst?

9. Lýst þér ennþá þannig á mig?

10. Hvað minnir þig á mig?

11. Ef þú gætir gefið mér eitthvað hvað myndi það vera?

12. Hversu vel þekkiru mig?

13. Hvenær sástu mig síðast?

14. Hefur þig einhvern tímann langað til að segja mér eitthvað en ekki getað það?

15. Ætlaru að setja þetta á bloggið þitt svo ég geti skrifað um þig?


Jæja, ég vona að ég á nóg og marga vini til að fá mörg svör...
Nei, ég segi svona bara
Deisý

» 7 hafa sagt sína skoðun

10.01.2006 19:16:05 / punk_dyr

Skólinn byrjaður

Jæja, þá er kominn tíma til að blogga. Það sem helst er í fréttum í dag er það að skólinn er byrjaður, og ég er tognuð í ristinni.

Ok, ég er byrjuð í skólanum aftur, og er að taka nokkur ágæt fög og nokkur ömurleg, sem ég verð því miður að taka

Ok, ég er í...
eðl 203 (ekki einusinni spurja af hverju. ég veit það ekki einusinni sjálf)
líf 103 (já. aftur)
nát 113 (sem er jarðfræði. loksins fæ ég að fara í þennan áfanga. ég er á nát braut, og þetta er 4 önnin mín...)
jar 113 (það er stjörnufræði, sem ég hlakka pínu til að læra meira um. ég hef alltaf haft áhuga á stjörnufræði)
stæ 403 (sem ég er pínu að kvíða fyrir. ég er komin svo langt í stæ að þetta hlýtur að vera erfitt)
fra 303 (sem er ágætt að því að ég er í uppáhaldi hjá kennaranum)
svo er ég í þolfimi og útivist. Já, þetta eru tveir íþrótta áfangar. Það er soldið skrítið, en það er ok. þá þarf ég bara að fara í einn meiri íþrótta áfanga, og er miklu fyrr búinn með þetta og get bara sleppt því að hreyfa mig. það er svo leiðinlegt þegar maður ÞARF og VERÐUR að gera það. það er ok ef maður vill hreyfa sig.

En ok. með tognunina. Það var soldið ævintýri. ég var að fara niður í herbergið mitt til þess að sækja kortið mitt til að geta borgað hamborgarann. og ég er í tröppunum og misstíg mig eikkað illa. svo líður bara yfir mig! Þetta var greinilega alveg rosalega vont. og svo er ég að drepast í fætinum og alveg bara að farast, þannig að ég fór upp á sjúkrahús í morgun til að láta athuga hvort ég væri nokkuð brákuð á ristinni. en þetta var ok. ég er bara tognuð, og það er vont að labba, en ég lifi þetta af.

Jæja, núna leiðist mér, og ætla að fara í fiskaleikinn
Dagmar

» 2 hafa sagt sína skoðun

01.01.2006 02:56:31 / punk_dyr

Gleðilegt nýtt ár!

Jæja, þá er komið 2006. aldrei aftur eigum við að skrifa 2005 á glósur eða neitt svoleiðis. Það verður spes. og erfitt að venjast.

Kvöldið var allavega alveg geðveikt. Við byrjuðum avísu soldið snemma að skjóta upp, en það var bara svo að Rúnar Atli fengi að sjá eikkað af því.
Svo var matur. Kalkúnn. Alveg æðislegur! Ég borðaði avísu ekki mikið af kalkúninum, en stuffingið var alveg stórkostlegt!
Svo var áramótaskaupið. Ekki alveg eins gott og það hefur verið, en það var ok. Ég skildi ekki alveg allt, enda horfi ég mjög sjaldan á fréttir.
Svo voru meiri flugeldar, og kampavín, og svo fóru foreldrarnir upp í rúm, og þá fóru ég og tinna að horfa á Finding Nemo, og borða snakk og drekka kók.

Við erum líka í alveg frábærum leik sem við erum alveg háðar. Leikurinn heitir Feeding Frenzy, og maður er fiskur, og borðar hina fiskana sem eru minni en maður sjálfur. Svo stækkar maður, og á endanum borðar maður stóra hákarlinn, og þá ertu bestur í sjónum. Ég yrði frábær fiskur að því að ég er búin með öll 40 borðin. Svo er það erfiðasta, maður á að gera öll borðin á einhverjum takmarkaðum tíma, en ef tíminn er búinn í einu borði þá þarf maður að byrja ALLT upp á nýtt. En ég er alveg að tapa mér í þessum leik. Hann er alveg 100% snilld.

allavega, ég verð að halda áfram í leiknum
blæjó
Deisý

» 1 hafa sagt sína skoðun

26.12.2005 02:08:30 / punk_dyr

jólin eru að verða búin

Jæja, þá eru jólin komin og aðfangadagur búinn og allir búnir að fá pakka. Ég fékk fullt af alveg frábærum gjöfum, til að telja upp nokkrar fékk ég...

nýjan bakpoka sem er notaður í dagsgöngur, en verður samt oftar notaður sem skólataska, frá Rúnari Atla
Spongebob Squarepants myndina frá systur minni
sokka frá ýmsum fjölskyldmeðlimum
15000kr til að eyða í Útilíf
2 geisladiska
geggjaða eyrnalokka
2 lyklakippur
blað skreytt með nafninu mínu (bleikt!) sem er innrammað (hevý töff)
farsímaskraut (sem er svo flott ég get ekki hætt að horfa á símann minn!)
sænska matreiðslubók (til að geta eldað þegar foreldrarnir eru fluttir að heiman)
geðveikt snyrtidót frá bestu frænkunni í heiminum
og svo ógeðslega töff dót...

ég er 17 ára. þ.a.l. er ég með bílpróf. þ.a.l. er ég oft á bíl. og að því að þetta er ísland, og vetur, kemur oft snjór og frost á bílinn. þá þarf maður að eiga sköfu. ég fékk ógeðslega flotta, bleika sköfu (með spegli) og með sköfunni fylgdi EINN vettlingur (sem er líka bleikur og loðinn á endanum) þetta er nákvæmlega það sem mig vantaði, að því að um daginn var mikill snjór og ég var að skafa, og mér varð alveg viðbjóðslega kallt á annarri hendinni (sem var að skafa) og ég hef ekkert á móti því að hafa spegil á sköfunni. það er bara betra.

svo fékk ég göngustafi frá mömmu þórhildar og begga að því að ég hjálpaði svo vel í brúðkaupinu þeirra (á afmælinu mínu) og ég er svo ánægð með þessa göngustafi að ég er alveg að kálast.

svo er það gjöfin frá evu og bjössa. ég get aldrei notað gjöfina án þess að hugsa um bjössa. svona er lífið.

ég man ekki í augnablikinu frá neinum öðrum gjöfum, en ég er viss um að ég er að gleyma einhverju, og ég upplýsi ykkur þá þegar ég man eftir þeim
blæjó í bili
Deisý

» 2 hafa sagt sína skoðun

23.12.2005 08:07:38 / punk_dyr

Þreytt

Ég er ógeðslega þreytt. Ég hef líka 8 mín þangað til ég þarf að leggja af stað í vinnuna.

Mér finnst allt of mikið að vinna til 11 um kvöldið einn dag, og svo byrja 9 næsta dag. En þetta verður miklu erfiðara næstu viku. þá er ég að vinna 11-11 vakt, og svo 8-6 daginn eftir. Það verður morð.

En ég var að fatta að ég ætti að fara að setja bílinn í gang svo ég frjósi ekki á leiðinni til Borgarness.

Blæjó
Deisý

» 2 hafa sagt sína skoðun

21.12.2005 14:10:01 / punk_dyr

Jólastuð

Jæja, núna eru 3 dagar til jóla, og ég er ennþá ekki komin í jólaskap. Ég er búin að kaupa allar jólagjafir, og búin að pakka þær inn, nema eina, og mér finnst jólin ekkert vera að koma. ég veit ekki akkuru. Svona er þetta bara.

En ég er búin að fá einkunnirnar mínar "officially" og þetta var víst alveg rétt. því miður. En svo er ég að pæla að taka 3 auka annir og klára sjúkraliðabrautina líka og svo kannski verða hjúkka. hver veit? ég verð bara að tala við námsráðgjafa um þetta.

Svo er ég að vinna alveg hevý mikið í jólafríinu. ég er að vinna í dag, á morgun, og hinn, og svo 27, 28 og 30, og svo veit ég ekki hvernig þetta verður eftir áramót. Ég get auðvitað ekki verið að vinna 5 að því að það er dagurinn sem pabbi, Tinna og Rúnar Atli flytja og ég ætla að fara með þeim á flugvöllinn.

Hvað á ég að segja meira? Jú, björgunarsveitarferðin.

Ok, við fórum upp á eikkað fjall í hvalfirðinum eða eitthvað, og ætluðum að labba upp að einhverjum foss, fá okkur að borða og labba svo tilbaka. Þetta var ógeðslega erfitt fyrst og ég pældi í alvörunni að snúa við og bíða í bílnum. en sem betur fer hætti ég að pæla í þessu og labbaði bara meira og meira. þetta var rosalega gaman þangað til ég datt næstumþví í á sem var örugglega 10m niður. sem betur fer náði Siggi Kári að grípa í bakpokann minn til að bjarga mér (sem betur fer var þetta BJÖRGUNARSVEITAR ferð) og hann kyrkti mig næstumþví í leiðinni. en ok. ævintýri búið. þangað til við ætluðum að fara yfir ánna. þá steig ég ofaní hana, og blotnaði í gegnum skóinn og allt. svo fórum við nálægt fossinum, og fengum okkur að borða.

svo á leiðinni niður (sama leiðin, bara þá var orðið dimmt) svo ætluðum við að fara aftur yfir ánna, og ég datt á leiðinni. ég rann á hálkubletti og datt framfyrir mig. sem var alveg geðveikt stuð! not. mér tókst að togna í úliðnum, og þumalputtanum. í göngu. og svo steig ég aftur ofan í ánna. og blotnaði á hinum fætinum! þetta var ekki einusinni fyndið lengur.

En svo var orðið rosalega dimmt og ég gleymdi að telja hversu oft ég datt. sem var örugglega 7 eða 8 sinnum ef maður telur að stíga í ánna með. En þetta var geggjað gaman, bara erfitt, og þetta var á laugardaginn 17 (pabbi átti afmæli þá!) og núna á miðvikudaginn, er ég ennþá með þvílíkar "hassperur" (smá einkahúmor) í höndunum og fótunum. og mér er ennþá pínu illt í tognuðu hendinni minni.

En við látum þetta duga
Deisý

» 1 hafa sagt sína skoðun

18.12.2005 19:36:56 / punk_dyr

Jæja...

Núna er ég búin að fá einkunirnar svona "unofficially".

Ég var nú ekki alveg nóg og sátt við þetta allt.
Ég verð að endurtaka efn 203 og líf 103. sem ég er varla að nenna

En, það sem ég er ágætlega stolt með (fyrir utan stæ)
Stæ : 5
Ísl : 6
Sag : 6!
Íþr : 7
Sæn : 8
Sál : 8
Fél : 9!!!

Þetta er ég þokkalega stolt af. sérstaklega sögu, sálfræði og félagsfræði.

Jæja, núna nenni ég ekki meir
Blæ
Deisý

» 2 hafa sagt sína skoðun

14.12.2005 13:02:48 / punk_dyr

BÚIN Í PRÓFUM!!!!!

Loksins er ég búin í prófunum!!!!!!!

Þá er ég búin í... (í röð)
Efn 203
Sæn 203
Fél 103
Sag 103
Ísl 303
Líf 103
Sál 103
Stæ 303

Nema auðvitað ef ég féll í einhverju.

Ok. Núna kemur jólalistinn Jóhanna
DVD:
racing stripes
einhverjar aðrar disney myndir, ég man ekki alveg nákvæmlega hverjar mig langar í

CD:
My chemical romance
heitar lummur
man ekki meira

Annað:
naflalokka (ekki frá Ice in a bucket)
skór
inneign í útilíf

Svona, núna er komin pínu jólalisti. þetta ætti allavega að duga fyrir þig (Jóhanna) og Davíð.

Jæja, við heyrumst.
Deisý

» 0 hafa sagt sína skoðun

13.12.2005 20:12:10 / punk_dyr

Meira á morgun

Jæja, núna er ég í smá lærdómspásu (sem endist restið af kvöldinu avísu) og er að fara í síðasta prófið mitt á morgun. Stæ 303. Minnz hlakkar ekki neitt til.

Jæja, ég blogga meira þegar ég er glöð aftur. s.s. þegar ég er búin í prófinu á morgun kl. 10.30 eða eikkað.

Heyrumst á morgun!!!!

Blæjó
Deisý

» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3